16.06.2010
Símanúmer starfsstöðva.
| Símanúmer | Notandi |
| 895-5270 | Brekkuskóli |
| 895-5271 | Giljaskóli |
| 895-5272 | Glerárskóli |
| 895-5273 | Lundaskóli |
| 895-5274 | Oddeyrarskóli |
| 895-5275 | Síðuskóli |
| 895-5276 | Vinnuskólabíll |
| 895-5278 | Fatlaðir |
| 895-5279 | Smíðavöllur |
| 895-5732 | Golfvöllur |
| 895-5268 | Gróðrarstöð |
| 860-9309 | Orri - Forstöðumaður vinnuskólans |
| 895-5269 | Aníta - verkstjóri 14 og 15 ára |
| 895-5231 | Linda - verkstjóri 16 ára |
15.06.2010
Vinnuskólinn er byrjaður.
Vinnuskóli akureyrar hófst miðvikudaginn 9. júní. Árgangur 1995 mætir á sína starfsstöð (sinn skóla) kl. 8:30 og árgangur 1996 skal mæta á sína starfsstöð kl. 12:30.
14.04.2010
Vinnuskóli 14 og 15 ára sumarið 2010
Frí verður vikuna 11.júlí – 18.júlí.
14 ára unglingar vinna frá kl. 12:30 – 15:30 mánudaga – fimmtudaga.
15 ára unglingar vinna frá kl. 8:30 – 11:30 mánudaga - fimmtudaga.
Tímakaup 14 ára unglinga kr. 359,00
Tímakaup 15 ára unglinga kr. 410,00
Orlof er innifalið í ofangreindum kauptöxtum.
Laun verða greidd inn á launareikning í banka.
Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar.
Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.
Samkvæmt lögum greiðist 6% skattur af launum 14 og 15 ára unglinga um leið og þau fara yfir kr. 100.745 á ári, (afsláttur kr. 6.045).
14 og 15 ára unglingar eiga ekki veikindarétt á launum.
Launaseðlar verða sendir heim í pósti.
Útborgun launa er síðasti virki dagur mánaðar.
Laun fyrir tímabilið 7. júní – 15. júní verða greidd 30. júní.
Laun fyrir tímabilið 16. júní – 15. júlí verða greidd 30. júlí.
Laun fyrir tímabilið
16. júlí – 6. ágúst
verða greidd 31.
ágúst.
-
14.04.2010
Vinnuskóli 16 ára sumarið 2010
16 ára unglingar
fæddir 1994 vinna 6 klst.
á dag. Hver unglingur
getur unnið allt að 144
klst.
Starfstímabilið er frá
7. júní – 6. ágúst.
Vinnuskólinn verður lokaður vikuna 11.júlí – 18. júlí.
Starfstímabilið er 6 vikur, frá 7.júní til 26. júlí, unglingarnir hafa þó tíma.
til 6. ágúst til að klára tímabilið sitt. Vinnutíminn er 6 klst. á dag. Athugið að matartími telst ekki sem vinnutími.
Unnið verður frá mánudegi til fimmtudags en ekki verður unnið á föstudögum.
Tímakaup 16 ára unglinga í dagvinnu er kr. 539,00.
Orlof 10,17% er innifalið í ofangreindum kauptaxta.
Laun verða greidd inn á launareikning í banka.
Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar.
Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.
Unglingar sem verða 16 ára á árinu þurfa að skila skattkorti til Starfsmannaþjónustu svo ekki verði dregin staðgreiðsla af launum.
Rétt er að benda á mikilvægi þessa að skattkorti sé skilað tímanlega þ.e. í síðasta lagi viku fyrir útborgun svo ekki komi til frádráttar vegna staðgreiðslu.
Lífeyrissjóður 4% er dreginn af launum um næstu mánaðamót eftir að 16 ára aldri er náð. Greitt er í Stapa lífeyrissjóð, mótframlag 11,5%.
Veikindaréttur er skv. kjarasamningum LN, grein 12.2.2 um tímavinnufólk. Veikindadaga á launum og tímana fyrir þá þarf að skrá.
Launaseðlar verða sendir heim í pósti.
Útborgun launa er síðasti virki dagur mánaðar.
Laun fyrir tímabilið 7. júní – 15. júní verða greidd 30. júní.
Laun fyrir tímabilið 16. júní – 15. júlí verða greidd 30. júlí.
Laun fyrir tímabilið 16. júlí – 6. ágúst verða greidd 31. ágúst.
Vinnuskólinn sumarið 2009
Vinnuskólinn verður starfandi frá 8. júní til 27. júlí í sumar.
Unnið verður 4 daga vikunnar; frá mánudegi til fimmtudags - ekki verður unnið á föstudögum.
14 og 15 ára unglingar taka sér frí vikuna 12. – 19. júlí.
Breytingar hafa orðið á vinnufyrirkomulaginu frá fyrra ári :
Vinnudagurinn styttist um ½ klst. hjá 14 og 15 ára en um 1 klst. hjá 16 ára.
-
14 ára geta unnið 72 klst. í heildina og verður vinnutíminn hjá þeim kl. 12:30 – 15:30.
-
15 ára geta unnið 72 klst. í heildina og verður vinnutíminn hjá þeim kl. 08:30 – 11:30.
-
16 ára vinna 6 tíma á dag.
Sækja skal um rafrænt á heimasíðu Akureyrarbæjar og er tekið við umsóknum frá 1.- 19.apríl 2009.
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.
